Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Hér kemur skýringin við myndirnar frá mér

Þannig var það að nokkrum ungmeyjum Kissing í fjölskyldunni datt í hug að halda frænkupartý í haustGrin. Þær skipulögðu þetta af sinni eistöku snild þessar elskur Heart og ákváðu að partýið yrði haldið heima hjá mér hehe Wizard . Við söfnuðumst síðan saman eitt föstudagskvöl Halo allar mættu með með einhverjar veitingar bæði í föstu formi og fljótandi W00t. Skemmtum við okkur við spil og ýmsa  leiki Devil framm eftir kvöldi.  Verðum endilega að endurtaka leikin í haust stelpur Whistling  Þetta var svo agalega gaman Grin InLove Whistling rosa fjör Wizard. Strákar þið fáið ekki að vera með hehe Frown sama hvað ykkur langar til þess Shocking........En sem sagt myndirnar úr þessu frábæra partýi eru hér til hægri á síðunni undir nafninu Cool Nokkrar góðar frá Sessu................ Geggjað stuð

En hvernig er þetta með hina ættingjana ætla þeir ekkert að melda sig hingað inn Blush við erum nú aðeins fleiri en átta, eða það hélt ég FootinMouth..................... Koma svoo allir og vera meðSmile Kv Sessa

Vinarljóð.

Gulli og perlum að safna sér

sumir endalaust reyna.

Vita ekki að vináttan er,

verðmætust eðalsteina.

Gull á ekkert að gefa þér

og gimsteina ekki neina,

en viltu muna að vináttan er

verðmætust eðalsteina.

Texti: Hjálmar Freys

Lag: Vem kan sigla förutanvind


Skýring við myndir

 Kissing Whistling

 Ég ég rakst á þetta ljóð eftir Kristján frá Djúpalæk en ég veit því miður ekki hvað það heitir. Lesið, njótið og hugsið um það

 

Ef öndvert allt þér gengur

og undan halla fer

skal sókn í huga hafin

og hún mun bjarga þér.

Við getum eigin ævi

í óska farveg leitt

og vaxið hverjum vanda,

sé vilja beitt.

 

Hvar einn leit naktar auðnir,

sér annar blómaskrúð.

Það verður, sem þú væntir,

það vex, sem að er hlúð.

Því rækta rósir vona

í reit þíns hjarta skalt,

og búast við því besta

þó blási kalt.

 

Þó örlög öllum væru

á ókunn bókfell skráð,

það næst úr nornaböndum

ef nógu heitt er þráð.

Þrjú orð að endurtaka,

ég er við hvert mitt spor:

fegurð, gleði, friður-

mitt faðirvor.

Kv SessaHeart

 


Myndir

Fólk má ekki gleyma sér í myndunum Það hljóta að vera til fleiri myndir af þessari fjölskyldu en í villtum partíum. Eru ekki til góðar myndir af systkynunum í afmælinu um daginn þar sem allir voru kurteisin uppmáluð. Ég ætla að reyna að láta inn mynd af mömmu, sjáum til hvort það tekst.

Mangi


myndir

Nú er um að gera að allir verði duglegir að finna flottar myndir,ekki síst gamlar myndir.Hef grun um að Eyþór lumi á slatta af myndum frá því í den,þannig að ef þú lest þetta Eyþór þá endilega hafðu samband. Sjálf ætla ég að leggjast yfir albúmin í næsta góða fríiSmile  Svo þurfa fleiri að vera duglegir að innskrá sig og vera virkir í þessu skemmtilega framtaki. Þá er það ekki fleira í bili kæru ættingjar,kv.ÞuraJoyful

Skoðanakönnun

Jæja kæru ættingjar, þá er ég búinn að skella inn einni skoðanakönnun svona til að kanna aðeins hversu mikið við vitum um hvort annað.
Að sjálfsögðu verða allir sem taka þátt að reyna að telja þetta saman í huganum eða með einhverjum öðrum skipulögðum hætti.  Treystið ekki á að þó einhver sé búinn að svara að hann hafi talið 100% rétt.  Tek það fram að ég hef ekki ráðfært mig við neinn varðandi þessa könnun og þvi gæti ég verið að gera vitleysu - held þó að þetta sé nokkuð nákvæmt hjá mér.  Ég ákvað telja bara afkomendur (bæti fósturbörnum við) en tengdabörnin eru ekki talin með.

Góða skemmtun.


þura prufar

er að reyna að læra á þetta kerfi

Vantar myndir

Nú langar mig til að auglýsa eftir myndum af Beitistöðum eða landinu þar í kring.  Ég ætla að nota myndina í haus hér á síðunni og svo væri líka gaman að búa til myndamöppu með myndum frá bænum og fólkinu í kringum hann, helst frá sem fjölbreyttustu tímaskeiði.  Að sjálfsögðu væri frábært að fá mynd af Beitistaðahjónunum sjálfum með einhvern flottan bakgrunn af bænum eða landinu í kring ef hún er til einhversstaðar.

Þannig að nú mættuð þið gjarnan fara að skoða myndaalbúmin ykkar og athuga hvort þið eigið ekki eitthvað af skemmtilegum myndum.  Ef þið getið þá er best að fá þær á tölvutæku formi en annars getið þið sent þær til mín og ég skanna þær inn og kem þeim svo til ykkar aftur.


Smá test

Jæja mig langaði til að prufa að setja inn smá færslu, er reyndar ótrúlegur klaufi í öllu svona bloggi Tounge Mér finnst þetta vera ótrúlega sniðug hugmynd að vera með svona fjölskyludsíðu, frábært framtak hjá þér Óskar minn Cool

En mig langaði bara að benda ykkur á það kæru ættingjar að ég er búin að setja inn myndir frá þorrablótinu hér til hliðar undir myndaalbúm (Óskar gerði það reyndar fyrir mig híhí Tounge )  Ég ætla svo kannski að bæta inn fleiri myndum, tók nefnilega svo margar Whistling 

En læt þetta duga í bili Grin

Ólöf Inga ofurbloggari Joyful

p.s. allir að vera duglegir að blogga Wink


og svona virkar þetta þá

Þá er ég búinn að koma þessu í rétta virkni.  Allir sem eru með bloggsíðu í gegnum moggabloggið, líkt og ég er með oskarorn.blog.is, geta fengið aðgang að annari síðu.  Þannig er ég búinn að gefa eftirtöldum aðgang til að skrá blogg og athugasemdir undir eigin nafni:
Magnús, Erna, Sessa, Áslaug.

Aðrir hafa fengið aðgang beint að Beitistaðasíðunni en það er betra ef hver er með sína síðu og svo hliðaraðgang að Beitistaðasíðunni.  Þá væri bara einn stjórnandi á síðunni og hinir geta skrifað og skrifa þá alltaf undir sínu nafni.

Í tilviki þessara færslu þá skráði ég mig inn sem oskarorn og bloggaði þetta úr mínu kerfi.

Og svo kemur nafnið mitt sjálfkrafa undir með tengil inn á mína síðu.


Snillingur

Hafið þið tekið eftir því hvað ég er mikill snilingurCool tókst þetta í fyrstu tilraun.


Næsta síða »

Höfundur

Beitistaðafjölskyldan
Beitistaðafjölskyldan
Þessi bloggsíða mun innihalda upplýsingar um afkomendur hjónanna frá Beitistöðum, Óskars Guðmundssonar og Jóhönnu Ólafsdóttir.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband