Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Spakmæli

Undirmeðvitundin deilir ekki við þig.

Hún samþykkir það sem meðvitundin fyrirskipar. 

Ef þú segir, ,,ég næ aldrei árangri''

þá mun undirmeðvitundin vinna hörðum höndum

á að láta það vera að raunveruleika.

Veldu því jákvæðar hugsanir -

  

 
  
                  

Til hamingju Hanna Þóra

Kæru ættingjar og vinir.

Ég má til með að segja ykkur frá því að ég fór í Óperuna í Wink gær þar sem hún InLove Hanna Þóra frænka mín (okkar) syngur Whistling eitt af aðalhlutverkunum í Cosi Fan Tutte. Og það get ég sagt ykkur að hún er sko aldeilis að standa sig Smile vel stelpan og er fjölskyldunni til sóma. Við Erna Hafnes vorum sammála um að þó að hinir söngvararnir Whistling hafi verið góðir, hafi Hanna þóra verið LANG-LANG BEST Whistling af öllum sem þarna komu fram, hún var mjög örugg og afslöppuð á sviðinu, enda var þvílíkt mikið klappað fyrir henni í lokin. Það var mjög ánægjulegt Smile hvað margir Skagamenn komu til að sjá þessa sýningu og er allveg örugglega mikil hvatning fyrir hana InLove Elsku Hanna Þóra til hamingju með þessa frábæru sýningu og takk fyrir frábært kvöldWhistlingKissing ..

Whistling Svo á hann Ísak Örn afmæli í dag. Orðin fjögura ára drengurinn.. Til hamingju með afmælið elsku Ísak Örn Wizard


Aukasýning!

Jáb......

Okkur gengur svo geggjað vel með óperuna og höfum fengið svo frábæra umfjöllun að það hefur verið ákveðið að hafa aukasýningu en hún verður þriðjudaginn 15 apríl.

Fyrir þá sem ekki hafa náð að tryggja sér miða þá er þetta loka tækifæri Smile Miðasala er á opera.is það er líka hægt að hringja Wink

Ég kem til með að syngja þessa sýningu Grin

 

Söng kveðja

 Hanna Þóra


Cosí fan tutte!

Sæl og blessuð kæra familia!

 

Nú líður að frumsýningu á Cosí fan tutte eftir Mozart í íslensku óperunni.En ég hef verið á ströngum æfingum síðustu 6 vikurnar. Undirbúningurinn fram að sviðsæfingum var 3 mánuðir. Þetta er búið að vera geggjað ferðalag og æðisleg upplyfun Smile Ég syng eitt af aðalhlutverkunum en það er hlutverk fiordiligi,geggjað flott hlutverk,er nánast alltaf á sviðiGrin Mig langar að sjálfsögðu að hvetja ykkur kæru ættingjar til að koma og sjá mig á sviði,og stiðja við bakið á mér með því að vera á staðnum. Það er ómetanleg tilfining að vita að það er fólk í salnum sem er sérstaklega komið til að horfa á sig(Þið vitið jú hvað ég er athyglissjúk)LoL Sýningar verða samtals fjórar. Þar sem við erum tvær sem fáum að spreyta okkur á hlutverki fiordiligi þá syngjum við tvær sýningar hvor. Ég syng aðra sýningu sem er 9 apríl og lokasýningu sem er 13 apríl. Gallinn við þetta er að önnur sýning er lokuð þar sem glitnir hefur keypt hana alla. Nú þá er ekkert annað í stöðunni en að panta bara miða á lokasýninguna.Halo Ef miðasala verður góð þá verður 5.sýningunni bætt við en ég kæmi til með að syngja hana,en alls ekki treysta því. Verði frekar dugleg að panta miða núna og þá fæ ég þriðjusýninguna.InLove Þetta er allra flottasta óperuuppfærsla sem sett hefur verið upp í óperustúdíói Íslensku óperunnar,það er engu við sparað. Og þeir sem komið hafa nálægt þessu, ljósahönnuður,búningahönnuður,leikmyndahönnuður og leikstjóri og að sjálfsögðu allir þeir sem starfa við íslensku óperuna hafa gert þetta sem flottast fyrir okkur söngvarana. Frábært tækifæri fyrir okkur sem erum að feta okkar fyrstu skref og ég tel mig vera svakalega heppna að hafa fengið þetta tækifæri því það eru ekki margir sem hafa kost á þvíWink Cosí fan tutte er tilvalin ópera fyrir byrjendur létt og skemmtileg. Og þið þurfið ekki að hafa áhyggju af því að skilja ekkert því þetta er allt sett upp í textavél og einig er hægt að lesa sig til um sögðuþráðinn í leikskrá eða inn á vef íslensku óperunnar sem er www.opera.is  Miðaverð er í algjöru lágmarki eða aðeins 1000 kr og það er hægt að panta á vefnum eða hringja. Miðasala er opin alla daga. Nú er bara að skella sér í Óperuna og sjá Hönnu frænku ásamt öðrum glæsilegum söngvurum W00t 

Hlakka til að sjá ykkur sem flest

 

Knús og kossar

 

Hanna Þóra


Efnileg myndlistarkona

DSC03369Ég var að taka til á skrifborðinu hjá mér í kvöld og rakst þá á þessa flottu mynd sem hefur þvælst inn á milli námsbóka og ljósrita. Þarna sést hvað það er hæfileikaríkt fólk í fjölskyldunni. Whistling  Þessi fína mynd er teiknuð og klipt út eftir prinsessuna mína hana Ísabellu Garðarsdóttur InLove Hún er snillingur með blýantinn stúlkan Heart

Hér kemur skýringin við myndirnar frá mér

Þannig var það að nokkrum ungmeyjum Kissing í fjölskyldunni datt í hug að halda frænkupartý í haustGrin. Þær skipulögðu þetta af sinni eistöku snild þessar elskur Heart og ákváðu að partýið yrði haldið heima hjá mér hehe Wizard . Við söfnuðumst síðan saman eitt föstudagskvöl Halo allar mættu með með einhverjar veitingar bæði í föstu formi og fljótandi W00t. Skemmtum við okkur við spil og ýmsa  leiki Devil framm eftir kvöldi.  Verðum endilega að endurtaka leikin í haust stelpur Whistling  Þetta var svo agalega gaman Grin InLove Whistling rosa fjör Wizard. Strákar þið fáið ekki að vera með hehe Frown sama hvað ykkur langar til þess Shocking........En sem sagt myndirnar úr þessu frábæra partýi eru hér til hægri á síðunni undir nafninu Cool Nokkrar góðar frá Sessu................ Geggjað stuð

En hvernig er þetta með hina ættingjana ætla þeir ekkert að melda sig hingað inn Blush við erum nú aðeins fleiri en átta, eða það hélt ég FootinMouth..................... Koma svoo allir og vera meðSmile Kv Sessa

Vinarljóð.

Gulli og perlum að safna sér

sumir endalaust reyna.

Vita ekki að vináttan er,

verðmætust eðalsteina.

Gull á ekkert að gefa þér

og gimsteina ekki neina,

en viltu muna að vináttan er

verðmætust eðalsteina.

Texti: Hjálmar Freys

Lag: Vem kan sigla förutanvind


Skýring við myndir

 Kissing Whistling

 Ég ég rakst á þetta ljóð eftir Kristján frá Djúpalæk en ég veit því miður ekki hvað það heitir. Lesið, njótið og hugsið um það

 

Ef öndvert allt þér gengur

og undan halla fer

skal sókn í huga hafin

og hún mun bjarga þér.

Við getum eigin ævi

í óska farveg leitt

og vaxið hverjum vanda,

sé vilja beitt.

 

Hvar einn leit naktar auðnir,

sér annar blómaskrúð.

Það verður, sem þú væntir,

það vex, sem að er hlúð.

Því rækta rósir vona

í reit þíns hjarta skalt,

og búast við því besta

þó blási kalt.

 

Þó örlög öllum væru

á ókunn bókfell skráð,

það næst úr nornaböndum

ef nógu heitt er þráð.

Þrjú orð að endurtaka,

ég er við hvert mitt spor:

fegurð, gleði, friður-

mitt faðirvor.

Kv SessaHeart

 


Smá test

Jæja mig langaði til að prufa að setja inn smá færslu, er reyndar ótrúlegur klaufi í öllu svona bloggi Tounge Mér finnst þetta vera ótrúlega sniðug hugmynd að vera með svona fjölskyludsíðu, frábært framtak hjá þér Óskar minn Cool

En mig langaði bara að benda ykkur á það kæru ættingjar að ég er búin að setja inn myndir frá þorrablótinu hér til hliðar undir myndaalbúm (Óskar gerði það reyndar fyrir mig híhí Tounge )  Ég ætla svo kannski að bæta inn fleiri myndum, tók nefnilega svo margar Whistling 

En læt þetta duga í bili Grin

Ólöf Inga ofurbloggari Joyful

p.s. allir að vera duglegir að blogga Wink


Höfundur

Beitistaðafjölskyldan
Beitistaðafjölskyldan
Þessi bloggsíða mun innihalda upplýsingar um afkomendur hjónanna frá Beitistöðum, Óskars Guðmundssonar og Jóhönnu Ólafsdóttir.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband