27.2.2008 | 23:20
Skýring við myndir
Ég ég rakst á þetta ljóð eftir Kristján frá Djúpalæk en ég veit því miður ekki hvað það heitir. Lesið, njótið og hugsið um það
Ef öndvert allt þér gengur
og undan halla fer
skal sókn í huga hafin
og hún mun bjarga þér.
Við getum eigin ævi
í óska farveg leitt
og vaxið hverjum vanda,
sé vilja beitt.
Hvar einn leit naktar auðnir,
sér annar blómaskrúð.
Það verður, sem þú væntir,
það vex, sem að er hlúð.
Því rækta rósir vona
í reit þíns hjarta skalt,
og búast við því besta
þó blási kalt.
Þó örlög öllum væru
á ókunn bókfell skráð,
það næst úr nornaböndum
ef nógu heitt er þráð.
Þrjú orð að endurtaka,
ég er við hvert mitt spor:
fegurð, gleði, friður-
mitt faðirvor.
Kv Sessa
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Biðst afsökunnar Þessi titill er ekki réttur hjá mér Titilinn átti að vera ljóð en ekki Skýring myndir.... það er titill sem kemur kanski seinna.......En svona er lífið
Góða nótt og Guð geymi ykkur öll
Sesselja Óskarsdóttir, 27.2.2008 kl. 23:29
hæ Sessa og allir hinir,hva þú ert bara á kafi í ljóðunumen það er reyndar hið besta mál og ljóðin virkilega falleger ekki bara allt gott hjá öllum,maður er alltaf að vonast eftir að eignast fleiri vini hérna,við erum jú 54,kooooma svoen ég bíð ykkur góða nótt og verið Guði falin. KV.Þura á n.vaktinni
Þura og Brandur, 28.2.2008 kl. 01:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.