25.2.2008 | 21:14
myndir
24.2.2008 | 10:57
Skoðanakönnun
Jæja kæru ættingjar, þá er ég búinn að skella inn einni skoðanakönnun svona til að kanna aðeins hversu mikið við vitum um hvort annað.
Að sjálfsögðu verða allir sem taka þátt að reyna að telja þetta saman í huganum eða með einhverjum öðrum skipulögðum hætti. Treystið ekki á að þó einhver sé búinn að svara að hann hafi talið 100% rétt. Tek það fram að ég hef ekki ráðfært mig við neinn varðandi þessa könnun og þvi gæti ég verið að gera vitleysu - held þó að þetta sé nokkuð nákvæmt hjá mér. Ég ákvað telja bara afkomendur (bæti fósturbörnum við) en tengdabörnin eru ekki talin með.
Góða skemmtun.
23.2.2008 | 19:53
þura prufar
23.2.2008 | 16:20
Vantar myndir
Nú langar mig til að auglýsa eftir myndum af Beitistöðum eða landinu þar í kring. Ég ætla að nota myndina í haus hér á síðunni og svo væri líka gaman að búa til myndamöppu með myndum frá bænum og fólkinu í kringum hann, helst frá sem fjölbreyttustu tímaskeiði. Að sjálfsögðu væri frábært að fá mynd af Beitistaðahjónunum sjálfum með einhvern flottan bakgrunn af bænum eða landinu í kring ef hún er til einhversstaðar.
Þannig að nú mættuð þið gjarnan fara að skoða myndaalbúmin ykkar og athuga hvort þið eigið ekki eitthvað af skemmtilegum myndum. Ef þið getið þá er best að fá þær á tölvutæku formi en annars getið þið sent þær til mín og ég skanna þær inn og kem þeim svo til ykkar aftur.
23.2.2008 | 10:47
Smá test
Jæja mig langaði til að prufa að setja inn smá færslu, er reyndar ótrúlegur klaufi í öllu svona bloggi Mér finnst þetta vera ótrúlega sniðug hugmynd að vera með svona fjölskyludsíðu, frábært framtak hjá þér Óskar minn
En mig langaði bara að benda ykkur á það kæru ættingjar að ég er búin að setja inn myndir frá þorrablótinu hér til hliðar undir myndaalbúm (Óskar gerði það reyndar fyrir mig híhí ) Ég ætla svo kannski að bæta inn fleiri myndum, tók nefnilega svo margar
En læt þetta duga í bili
Ólöf Inga ofurbloggari
p.s. allir að vera duglegir að blogga
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.2.2008 | 12:31
og svona virkar þetta þá
Þá er ég búinn að koma þessu í rétta virkni. Allir sem eru með bloggsíðu í gegnum moggabloggið, líkt og ég er með oskarorn.blog.is, geta fengið aðgang að annari síðu. Þannig er ég búinn að gefa eftirtöldum aðgang til að skrá blogg og athugasemdir undir eigin nafni:
Magnús, Erna, Sessa, Áslaug.
Aðrir hafa fengið aðgang beint að Beitistaðasíðunni en það er betra ef hver er með sína síðu og svo hliðaraðgang að Beitistaðasíðunni. Þá væri bara einn stjórnandi á síðunni og hinir geta skrifað og skrifa þá alltaf undir sínu nafni.
Í tilviki þessara færslu þá skráði ég mig inn sem oskarorn og bloggaði þetta úr mínu kerfi.
Og svo kemur nafnið mitt sjálfkrafa undir með tengil inn á mína síðu.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.2.2008 | 20:45
Snillingur
Hafið þið tekið eftir því hvað ég er mikill snilingur tókst þetta í fyrstu tilraun.
20.2.2008 | 20:42
Frábært framtak
Hæhæ
ER að prófa þetta kerfi hér. Flott framtak hjá Óskari Koma allri fjölskyldunni í loftið hehe Hvet alla til að skella sér í þetta.
Kv Sessa
20.2.2008 | 18:11
Viltu fá aðgang
Kæri ættingi,
Um síðastliðna helgi hitti ég þá ágætu menn Jón Trausta og Garðar Örn, frændur mína frá Beitistöðum. Við borðuðum saman fína kjúklingasúpu ásamt konum okkar og börnum. Að sjálfsögðu voru ýmis mál rædd eins og vera ber en það sem situr svolítið í mér eftir helgina er það sem við ræddum um tengslin við ættingja okkar. Við viðurkenndum allir að við hefðum verið í þeirri stöðu að við værum ekki nákvæmlega vissir um það hvað systkinabörn foreldra okkar hefðu fyrir stafni og jafnvel að við vissum ekki hvað þau ættu orðið mikið af börnum og hvað þá nöfnin á þeim öllum.
Þetta þykir okkur alveg ótækt og datt okkur því í hug að reyna að koma þessum hlutum í lag. Eitt af því sem okkur datt í hug var að koma upp heimasíðu á léninu www.beitistadir.is. Þá gætum við t.d. fengið einhvern tölvuklárann (ég veit um amk einn góðann) til að setja upp flotta síðu, sett upp flott ættartré og gert þetta svolítið skemmtilegt. Það kostar hinsvegar einhvern penin og áður en út í það verður lagt að safna fyrir því verðum við að vera viss um að það sé áhugi fyrir því að taka þátt í þessu. Til að prófa þetta aðeins þá ákvað ég að setja upp þessa síðu sem þú ert að lesa á núna og ætla ég að reyna að halda þessu úti án þess þó að yfirtaka algjörlega textaskrif.
Þannig að ef þú ert að lesa þessa síðu núna, ert kominn af þeim ágætu hjónum, Óskari og Jóhönnu frá Beitistöðum og langar til að taka þátt í að gera þessa síðu að skemmtilegum vettvangi, þá hvet ég þig til að senda mér tölvupóst á oskar73@simnet.is og ég skal gefa þér aðgang að síðunni.
Kveðja
Óskar Örn Guðbrandsson
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.2.2008 | 17:32
Tilraun
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar