14.4.2008 | 20:53
Til hamingju Hanna Þóra
Kæru ættingjar og vinir.
Ég má til með að segja ykkur frá því að ég fór í Óperuna í gær þar sem hún Hanna Þóra frænka mín (okkar) syngur eitt af aðalhlutverkunum í Cosi Fan Tutte. Og það get ég sagt ykkur að hún er sko aldeilis að standa sig vel stelpan og er fjölskyldunni til sóma. Við Erna Hafnes vorum sammála um að þó að hinir söngvararnir hafi verið góðir, hafi Hanna þóra verið LANG-LANG BEST af öllum sem þarna komu fram, hún var mjög örugg og afslöppuð á sviðinu, enda var þvílíkt mikið klappað fyrir henni í lokin. Það var mjög ánægjulegt hvað margir Skagamenn komu til að sjá þessa sýningu og er allveg örugglega mikil hvatning fyrir hana Elsku Hanna Þóra til hamingju með þessa frábæru sýningu og takk fyrir frábært kvöld ..
Svo á hann Ísak Örn afmæli í dag. Orðin fjögura ára drengurinn.. Til hamingju með afmælið elsku Ísak Örn
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vá takk fyrir þetta Sessa mín,þetta er falleg færsla hjá þér. Það var gott að vita af ykkur í salnum og frábært að hitta ykkur eftir sýningu
Til hamingju með litla prinsinn þinn
Hanna (IP-tala skráð) 20.4.2008 kl. 17:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.